HLYNUR HALLSSON


10.03 - 31.03 2007
HLYNUR HALLSSON
hallsson@gmx.net
hallsson@gmx.net
Hlynur Hallsson opnar sýninguna LJÓS - LICHT - LIGHT í galleriBOXi laugardaginn 10. mars 2007 klukkan 16.
Verkið sem Hlynur setur upp í galleriBOXi samanstendur af borði og sætum sem gerð eru á afar einfaldan hátt úr froðuplastplötum og gæruskinni. Froðuplastið er tilbúið efni sem gjarnan er notað til einangrunar og gæruskinnið er hinsvegar náttúruleg afurð en einnig gjarnan notuð til einangrunar eða öllu heldur sem fóður í ýmsar flíkur. Froðuplastið er framleitt hjá Plastási á Akureyri en gærurnar koma frá Skinnaiðnaði sem nú er búið að leggja niður, eða öllu heldur flytja til austurhluta Evrópu. Hlynur hefur sett upp svipuð verk á nokkrum stöðum eins og í Hannover og Vín og nú stendur yfir sýning hans hjá Kuckei+Kuckei í Berlín: www.kuckei-kuckei.de en þar eru áþekk sæti ásamt fleiri verkum. Sú sýning stendur einmitt til 10. mars, sama dags og sýningin í BOXi opnar.
Sýningargestir geta fengið sér sæti og hvílt lúin bein, spjallað saman eða horft og hvert á annað. Fólk getur blaðað í sýningaskrám frá sýningum sem Hlynur hefur haldið eða tekið þátt í. Einnig er hægt að ferðast í huganum til fjarlægra landa ef mann langar heldur til þess, sitjandi á þessum frumstæðu en hlýlegu bekkjum. Á vegginn hefur Hlynur spreyjað skilaboð sem hægt er að útleggja á ýmsa vegu. Á sama tíma og sýningin í galleriBOXi opnar, opnar Hlynur einnig sýningu á www.veggverk.org á vegg á mótum Glerárgötu og Strandgötu á Akureyri. Sýningin í GalleriBOXi stendur til sunnudagsins 25.mars 2007.
Hlynur Hallsson er fæddur á Akureyri 1968. Hann stundaði myndlistarnám á Akureyri, í Reykjavík, Hannover, Hamborg og í Düsseldorf. Hann hefur sett upp um 50 einkasýningar og tekið þátt í um 70 samsýningum. Hlynur hlaut verðlaun Kunstverein Hannover 1997 og verðlaun ungra myndlistarmanna í Neðra-Saxlandi 2001 og verðlaun Sparda Bank árið 2006. Hann hefur fengið 6 mánaða listamannalaun 1997, 2002 og 2003 og tveggja ára starfslaun 2006. Hlynur var bæjarlistarmaður Akureyrar árið 2005. Verk Hlyns eru í eigu Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins, Listasafnsins á Akureyri, Listasjóðs Dungals, Listasafns Flugleiða, Samlung Howig í Zürich auk nokkurra einkasafna í Evrópu. Hlynur vinnur með ljósmyndir, texta, innsetningar, gjörninga og hvað eina, allt eftir því sem hentar í hverju tilfelli. Hversdagslegir atburðir eins og sundferðir, gönguferðir eða snjóhúsbygging geta verið efniviður í verkum hans en einnig landmæri, samskipti fólks og viðhorf okkar. Nánari upplýsingar um Hlyn og verk hans er að finna á heimsíðunni www.hallsson.de.