Góða veislu gjöra skal - sýning stofnenda galleríBOX

Laugardaginn 14. mars kl. 16 munu stofnendur galleríBOX opna sýningu sína.
Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Dögg Stefánsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir stofnuðu BOXið þann 16.mars 2005.
Nú er tími til þess að kveðja og við viljum bjóða öllum sem hafa komið og átt gleðilegar stundir í BOXinu að gleðjast með okkur og sjá brot af list þeirra.

Dögg Stefánsdóttir (1978) býr og starfar á Akureyri. Hún útskrifaðist með Diploma frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2006. Dögg sýnir málverkið STREYMI.

Hanna Hlíf Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík 1. nóvember 1965 og fór 17 ára til London og lærði þar snyrtifræði. Hún var við nám í húsgagnasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með Diploma frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2006. Hún sýnir verkið FYRIR/EFTIR sem eru útsaumuð textaverk og notar þar gamalt handverk með nýjum tón.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir (1978) er fædd í Reykjavík en býr og starfar á Akureyri. Hún útskrifaðist með Diploma frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2005 og með Mastersgráðu í myndlist frá Glasgow School of Art árið 2007.
Á sýningunni mun Jóna Hlíf vera með bókverkið HÉR og veggspjaldið THINK DIFFERENT til sölu.
Einnig mun Jóna sýna innsetningu sem er á tilraunastigi og málverk.

GalleríBOX er opið laugardaga og sunnudaga milli kl. 14 og 17.

Allir velkomnir