Anna Richards í Boxinu - Konfekt fyrir augu og eyru
Anna Richards bæjarlistakona heldur veislu!
Anna Richards flytur í veislunni gjörning í sjö köflum. Um er að ræða djarfa tilraunastarfsemi þar sem ýmsar listgreinar mætast. Gjörningurinn er hluti af leið Önnu að sólósýningu sem er í vinnslu.
Tónlistina fremja Margot Kiis, Stefán Ingólfsson, Kristján Edelstein, Helgi Þórsson og Wolfgang Frosti Sahr. Þau verða einnig á tilraunaskónum og spinna í samvinnu við dans og myndlist. Verkið er myndkonfekt þar sem Brynhildur Kristinsdóttir og Jóna Hlíf Halldórsdóttir eru tilraunakokkarnir í samvinnu við Önnu.

Strax að loknum gjörningi eða klukkan 16 opnar sýning með verkum Önnu í GalleríBOX. Þar verða veitingar og fjör.
Verið öll velkomin.
Nánari upplýsingar um veisluna í Ketilhúsinu og sýninguna í GalleríBOX gefur Anna í síma 863 1696.