Viltu leika? Sýning í galleríBOX laugardaginn 16.maí
Nemendur Oddeyrarskóla og Brekkuskóla ásamt kennurum sínum unnu sérstaklega fyrir þessa sýningu. Er afrakstur þeirra vinnu til sýnis og er ætlað að vera einskonar leiðarvísir fyrir áframhaldandi vinnu.
Því þetta er bara byrjunin, þessari sýningu er ætlað að vaxa og breytast.
Öllum er heimilt að koma með verk á sýninguna eða gera verk á staðnum. Sérlega er horft til þess að fullorðnir og börn vinni saman verk og skilji þau eftir. Einnig heimilt að vinna áfram þau verk sem eru á staðnum og halda áfram með þau.
Þetta er lifandi sýning og hún gæti þróast í hvaða þá átt sem henni þóknaðist. En mikilvægast er, að myndlistin er sá samræðugrundvöllur sem allir mætast á.
Sýningin opnar kl. 15 laugardaginn 16.maí
Umsjónarmenn sýningarinnar eru; Brynhildur Kristinsdóttir, Joris Rademaker og Þórarinn Blöndal.
Sýningin stendur til 7. júní.